Minning Sveins Torfa Þórólfssonar, Prófessor við NTNU í Noregi, var heiðruð á hádegisfundi með því að fjalla um ný verkefni á sviði blágrænna ofanvatnslausna, sem var eitt helsta áhugamál og fagsvið Sveins Torfa síðustu áratugina.
Tími: Miðvikudaginn 15. febrúar 2017, kl. 12:30-14:00
Staðsetning: Fundarsalur Verkís, neðstu hæð við inngang, Ofanleiti 2, Reykjavík.
Efni málþingsins
- Kynning formanns VAFRÍ og æviágrip Sveins
- Æskuminningar Sveins Torfa úr Grindavík. Hilmar Sigurðsson, verkfræðingur.
- Áskoranir við meðhöndlun ofanvatns vegna þéttingar byggðar í röskuðu landi: Rammaskipulag Elliðaárvogs við Ártúnshöfða. Sigurður Grétar Sigmarsson, Verkís. Sjá einnig skýrslu unna fyrir Veitur Meðhöndlun ofanvatns í Ártúnshöfða
- Er vatn vannýtt auðlind? Halldóra Hreggviðsdóttir, Alta ehf. Sjá einnig Leiðbeiningar um blágrænar ofanvatnslausnir og fleiri fróðleikur frá Alta.
- Æskuminningar Sveins Torfa frá Skagaströnd. Ingólfur Hrólfsson, verkfræðingur.
- Niðurlag. Íris Þórarinsdóttir, Gjaldkeri VAFRÍ.
Fundarstjóri: Íris Þórarinsdóttir, tæknistjóri fráveitna, Veitum.