Sjálfbærni & loftslagsvá 2019

Aðalfundur VAFRÍ fór fram þriðjudaginn 7. maí kl. 11:30-13:30 í höfuðstöðvum Mannvits að Urðarhvarfi 6 Kópavogi. Auk hefðbundinna fundarstarfa voru áskoranir sem blasa við vatns- og fráveitum á tímum hnattrænnar hlýnunar ræddar og hvernig sjálfbærnishugsun er lausn við vandanum. 

Mannvit fær þakkir fyrir frábærar móttökur og ljúffengan hádegisverð.

 Dagskrá

11:30  Hádegisverður í boði Mannvits
12:00  Hefðbundin aðalfundarstörf
12:20  Sandra Rán Ásgrímsdóttir, sjálfbærni verkfræðingur hjá Mannviti
           Sjálfbærar borgir og samfélög, hlutverk vatns- og fráveitna
12:40 Fjóla Jóhannesdóttir, fagstjóri fráveitu hjá Veitum
           Áskoranir fráveitu vegna aðlögunar að loftslagsbreytingum
13:00 María J. Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Vatnaverkfræðistofu Háskóla Íslands
          Áhrif loftslagsbreytinga á vatnsveitur
13:20  Almennar umræður
13:30  Fundarlok

 Fundarstjóri:  Brynjólfur Björnsson, byggingarverkfræðingur hjá Mannviti