Framtíðarsýn í veitumálum var rædd á eftirmiðdagsfundi hjá Eflu, annars vegar á landsvísu í tenglsum við þróun ferðamála og hins vegar í sveitarfélögum um möguleika snjalltækni eða nýjan hugsunarhátt í veitustarfsemi.
Staður: EFLA Verkfræðistofa Lynghálsi 4
Stund: Fimmtudaginn 14. nóvember kl. 14.30 -17.00
Dagskrá
Anna Heiður Eydísardóttir, verkfræðingur og sjórnarmeðlimur, ávarpar fundinn og sér um fundarstjórn
Ragnhildur Gunnarsdóttir umhverfisverkfræðingur hjá EFLU kynnir Jafnvægisás ferðamála. Um verkefnið: Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ákvað árið 2017 að ráðast í umfangsmikið verkefni þar sem lagt er mat á álag á íslenskt samfélag, efnahag, innviði og umhverfi vegna fjölda ferðamanna á Íslandi. Staða mismunandi innviða og álag á þá var greint, þar með talið vatns- og fráveitur, sjá meira hér.
Garðar Gíslason, Sérfræðingur snjallkerfa hjá Veitum kynnir Innleiðingu snjallra lausna í vatnsveitu Álfaness. Þetta tilraunaverkefni gengur út á að prófa nýjar mæli- og samskiptalausnir til að þróa snjallt sjálfvirkt eftirlit með vatnsveitukerfum Veitna. Niðurstöður nýtast til að skapa sýn og forsendur fyrir innleiðingu á snjöllum vatnsveitukerfum og tilsvarandi framtíðarsýn Veitna, sjá glærur hér.
Hlöðver Stefán Þorgeirsson sérfræðingur í fráveitu og nýsköpun og tækniþróun hjá Veitum kynnir Stefnu Veitna og framtíðarsýn í skólphreinsun. Um verkefnið: Við rekstur fráveitu Veitna vegast á sjónarmið um metnað í umhverfismálum annars vegar og hagsýni hins vegar. Í stefnu Veitna kemur meðal annars fram að fullnýta skuli möguleika fráveitunnar til orku- og verðmætasköpunar. Hvað þýða þessar áherslur í íslensku samhengi?
Óformlegt spjall með veitingum frá EFLU verkfræðistofu