Háskóli Íslands og Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍs) buðu til morgunverðarfundar um mengun í jarðvegi þann 23. október 2024 frá kl. 8:20-10:00. Fyrst ræddu innlendir aðilar áskoranir frá sjónarhorni rekstraraðila vatnsveitu á eldbrotasvæði, og ráðgjafans. Síðan var reynslan frá Bandaríkjunum kynnt. Myndbands upptaka af erindum
Dagskrá
Kl. 8:20 Kaffi í anddyri húss
Kl. 8:40 Hrund Ólöf Andradóttir, deildarforseti umhverfis- og byggingarverkfræðideildar HÍ og gjaldkeri VAFRÍs, setur og stýrir fundi
Kl. 8:45 Erindi (glærukynningar)
Dr. Rainer Lohmann er prófessor við haffræðideild háskólans í Rhode Island. Hann nam efnaverkfræði við EHICS í Strasbourg í Frakklandi, og lauk doktorsnámi í umhverfisverkfræði við Lancaster háskóla í Bretlandi. Hann er forstöðumaður Superfund Research Program Center um uppsprettur, flutning, útsetningu og áhrif PFAS efna í umhverfinu. Rannsóknir hans beinast að mæla og greina örlög mengunarvalda af mannavöldum í umhverfinu, oft með óbeinum sýnatökuaðferðum.
Dr. Lohmann starfaði í stýrinefnd stjórnar vísindaráðgjafa Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna árin 2017-2023. Hann hlaut Fulbright Arctic Initiative III árið 2020 og Alexander-von-Humboldt Fellowship árið 2011. Sem meðlimur Global PFAS Science Panel og International Panel on Chemical Pollution hefur Dr. Lohmann starfað við að gera vísindi aðgengileg fyrir stefnumótendur. Hann heimsækir Háskóla Íslands sem Fulbright sérfræðingur með stuðningi frá Fulbright Íslandi.



