Líffræðileg hreinsun skólps 2012

Þéttsetinn fundarsalur

Málþing Vatns- og Fráveitufélags Íslands um líffræðilega hreinsun skólps á Íslandi, haldið í samvinnu við Háskóla Íslands, Orkuveitu Reykjavíkur, Samorku og Umhverfisstofnun, var gífurlega vel sótt.  Yfir 100 fagaðilar úr mismunandi geirum af öllu landinu tóku þátt í þinginu, sem var haldið í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur við Bæjarháls þann 8. nóvember 2012.

Dagskrá málþings um líffræðilega hreinsun skólps

Ráðstefnurit „Líffræðileg hreinsun skólps á Íslandi“

Frummælendur og pallborð

 

Glærur

Tryggvi Þórðarson, UST: Staða skólpmála á Íslandi

Hrund Andradóttir, HÍ: Fræðin og tæknin bak við líffræðilega hreinsun skólps

Guðmundur Baldursson: Skólphreinsistöðin í Hveragerði

Íris Þórarinsdóttir og Guðmundur Brynjólfsson, OR: Hreinsistodvar hring eftir hring í Borgarfirdi

Óskar Bjarnason: Bólholt stöðvar

Börkur Brynjarsson: Hreinsistöðvar að Borg og Flúðum

Ketill Hallgrímsson, Alcoa: Endalausar lotur

Guðmundur Pétursson: Tilbúið votlendi á Sólheimum

Árni Kristinsson og Helga Hreinsdóttir, HAUST: Ávinningur líffræðilegrar skólphreinsunar – Eyvindará sem viðtaki skólps

Aðdragandi málþingsins:

Reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp kveður á um að bæjarfélög, sem losi meira en 2.000 persónueiningar (p.e.) af lífrænu skólpi í viðkvæman viðtaka, hreinsi skólpið með tveggja þrepa meðferð þar sem seinna þrepið er líffræðileg hreinsun. Á síðasta áratug hafa nokkrar líffræðilegar hreinsistöðvar verið byggðar fyrir minni bæjarfélög inni í landi. Markmið málþingsins er fara yfir stöðu og stefnur í  líffræðilegri hreinsun skólps á Íslandi (>50 p.e.) og draga lærdóm af þessum fyrstu  rekstrarárum.